Nú stuttu fyrir hátíðir var afgreiddur nýr Cleopatra bát til Capbreton á Suð-vesturströnd Frakklands.

Að útgerðinni stendur Julien Pinsolle sjómaður frá Capbreton sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið L’Accalmie II.  Báturinn er 17brúttótonn.  L’Accalmie II er af gerðinni Cleopatra 40, sem er nýútgáfa af hinum vinsæla Cleopatra 38 bát.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 tengd ZF325IV gír.

Siglingatæki eru frá Furuno.  Hann einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til netaveiða.

Netaspil er frá Frakklandi.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 16stk 380lítra kör í lest.  Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Capbreton allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar. 3- 4 menn verða í áhöfn.