Raymond Bjørkås útgerðarmaður frá Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36B bát.

Raymond verður sjálfur skipstjóri bátnum, þrír verða í áhöfn bátsins.

Nýji báturinn heitir Frøya. Báturinn er 11metrar á lengd og mælist 18brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158TIM 600hö tengd  ZF360IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Olex.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubúnaður kemur frá Mustad í Noregi.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 16stk 660lítra kör í lest. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar. Salerni með sturtu.
Bátnum er kominn til Noregs og er á leið til heimahafnar.