Bjørn Jakobsen útgerðarmaður frá Napp í Lofoten í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Bjørnson. Báturinn mælist 15brúttótonn. Nýji báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni sem útgerðin fékk afhentann frá Trefjum árið 2008.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 750hö tengd ZF325IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línu og handfæraveiða. Línubúnaður er frá LorMek í Noregi. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 15stk 380L kör í lest. Í stýrishúsi er rúmgóður borðsalur og eldunaraðstaða með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Svefnpláss er fyrir 3-4 í lúkar ásamt salernisaðstöðu og sturtu