Útgerðarfélagið Jakob Valgeir ehf ehf á Bolungarvík fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát.
Að útgerðinni stendur Jakob Valgeir Flosason. Egill Jónsson verður skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Jónína Brynja ÍS 55. Báturinn mælist 30brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Jónína Brynja er af nýrri gerð Cleopatra 50 sem er sérhönnuð inn í nýlega breyttar reglur um stærðarmörk krókaaflamarksbáta. Báturinn mun leysa af hólmi eldri bát útgerðinnar sem strandaði við Straumnes í desember 2012.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6AYM 911hö tengd ZF500IV gír. Rafstöð er 28kW frá Kohler.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil er frá Beiti ehf og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Blóðungarbúnaður er frá 3X stál. Ískrapavél er frá Kælingu ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 19stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Þrír demparastólar í brú fyrir skipstjóra og háseta.
Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Borðsalur er í lúkar.