Útgerðarfélagið Breiðavík ehf í Ólafsvík fékk nú milli hátíða afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa feðgarnir Bárður Guðmundsson og Þorsteinn Bárðarson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Kristinn SH 712. Báturinn er 15brúttótonn og 11.9brúttórúmlestir og er í krókaaflamarkskerfinu. Kristinn er sérútgáfa Cleopatra 38 bátnum, lest bátsins hefur verið stækkuð ásamt því af stefni og stýrihús hefur verið hækkað nokkuð. Aðalvél bátsins er af gerðinni Caterpillar C18 1015hp tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er ískrapavél.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum frá Mareind í Grundarfirði.
Báturinn er einnig útbúin með tveimur vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Búnaður til línuveiða kemur frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 24stk 460lítra kör í lest í tveimur hæðum. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og tvo skipverja. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.