Útgerðarfélagið Kambur ehf í Hafnarfirði fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát. Að útgerðinni stendur Hinrik Kristjánsson. Ingimar Finnbjörnsson verður skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Steinunn HF-108. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Steinunn er af gerðinni Cleopatra 38.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 650hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún ehf. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.