Nú í lok júlí var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Vanna í Tromsfylki í Noregi. Kaupendur bátsins eru Kjell-Erik Karlsen og Inge Nilsen sem jafnframt verða skipverjar á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Vanntind. Báturinn mælist 15brúttótonn. Vanntind er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 700hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum frá Koden og Olex. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línu og netaveiða. Línubúnaður er frá Beiti í Vogum og netabúnaður frá Rapp. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú um miðjan ágúst.