Núna í apríl var afgreidd ný Cleopatra 31 til Lorient á vesterströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Erwan Babin sjómaður frá Lorient sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið “Cleopatra”. Báturinn er 9brúttótonn. “Cleopatra” er af gerðinni Cleopatra 31.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT(Iveco)N67 280 tengd ZF280IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno.
Báturinn er útbúinn til línu og handfæraveiða.
Línubúnaður er frá Able. Handfærarúllur eru frá DNG.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einagraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Lorient allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðrins. 1-2 menn verða í áhöfn.