Útgerðarfélagið Von ehf í Garði fékk nú í apríl afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni stendur Gísli Heiðarsson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Von GK 113 og leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni. Báturinn er 15brúttótonn og 11.9brúttórúmlestir og er í krókaaflamarkskerfinu. Skipstjóri á Von er Eyþór Sigmarsson.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er einnig ískrapavél frá Kælingu.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum frá Brimrún í Reykjavík.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Búnaður til línuveiða kemur frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og tvo skipverja. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.