Útgerðarfélagið Flugalda ehf á Suðureyri fékk nú í vikunni afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa feðgarnir Þórður E. Sigurvinsson og Sigurvin Magnússon. Þórður er jafnframt er skipstjóri á bátnum. Þetta er þriðji báturinn sem afgreiddur er til Sigurvins. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Hrefna ÍS 267 og leysir af hólmi eldri Cleopatra 28 bát með sama nafni. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Hrefna er af gerðinni Cleopatra 38 byggður á sömu hönnun og aflabátarnir Guðmundur og Hrólfur Einarssynir ÍS.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.