Útgerðarfélagið Jakob Valgeir ehf ehf á Bolungarvík fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni stendur Jakob Valgeir Flosason. Egill Jónsson verður skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Jónína Brynja ÍS 55.
Báturinn mælist 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Jónína Brynja er af nýrri gerð Cleopatra 40B sem er nokkru breiðari bátur enn eldri bátur útgerðarinnar. Báturinn mun leysa af hólmi aflabátinn Guðmund Einarsson ÍS sem er af gerðinni Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6WG1TCX 720hö (15.7L) tengd tveggja hraða gír ZF 550ATS gír. Nýjung í þessum bát er að gírinn hefur innbyggð tvö gírhlutföll. Efra hlutfallið er notað með léttann bát út á miðinn og neðra hlutfallið með hlaðinn bát til hafnar. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum Wesmar hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil er frá Beiti ehf og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 16stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.