Útgerðarfélagið Blakknes ehf á Bolungarvík fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra 38 bát.

Að útgerðinni standa bræðurnir Guðmundur og Jón Þorgeir Einarssynir. Pétur Jónsson er skipstjóri á bátnum. Guðmundur Einarsson er þó ekki alveg hættur hann mun verða afleysingaskipstjóri. Þetta er 5 Cleopatra báturinn sem fyrirtæki í eigu Guðmundar fá afgreidd frá Trefjum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Einar Hálfdáns ÍS-11. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Raymarine frá Sónar.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.