Útgerðarfélagið Gummi El. ehf á Akranesi fékk nú í vikunni afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni stendur Guðmundur Elíasson sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Flugaldan ST-54. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Flugaldan er af gerðinni Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp